Upplýsingaöryggisstefna

    Samþykkt 28.10.2021

    1. Upplýsingaöryggisstefna Kviku

    Gögn, upplýsingar, upplýsingakerfi og samskiptaleiðir Kviku banka hf. (hér eftir nefnt Kvika) skulu veraörugg, áreiðanleg, tiltæk og einungis aðgengileg þeim sem hafa til þess heimild.Stjórnun upplýsingaöryggis er nauðsynleg leið til að draga úr rekstraráhættu og lágmarka hættu á tjóni afvöldum atvika sem geta haft áhrif á starfsemi fyrirtækisins eða þjónustu við viðskiptavini.

    2. Tilgangur

    Upplýsingaöryggisstefna Kviku styður við samfelldan rekstur og þjónustu, lágmarkar þannigrekstaráhættu og hámarkar öryggi verðmæta í eigu og umsjón Kviku.

    3. Markmið

    Kvika veitir viðskiptavinum sínum örugga og trausta þjónustu með því að:

    • Kappkosta að mikilvæg þjónusta sé ávallt aðgengileg fyrir viðskiptavini
    • Hámarka öryggi upplýsinga í eigu og vörslu fyrirtækisins m.t.t. leyndar, réttleika og tiltækileika
    • Tryggja hlítingu við lög og reglur er varða meðhöndlun upplýsinga og samninga sem fyrirtækið hefur gert
    • Búa starfsfólki og viðskiptavinum öruggt umhverfi og stuðla að aukinni vitund um  upplýsingaöryggi
    • Framkvæma reglulega áhættugreininingar til að áætlanir um veitingu samfelldrar þjónustu til  viðskiptavina sé innan þjónustuviðmiða

    4. Umfang

    Upplýsingaöryggisstefnan er bindandi fyrir alla starfsmenn Kviku og þá sem veita fyrirtækinu þjónustu.Stefnan nær einnig til reksturs og aðstöðu sem eru í eigu og í umsjá fyrirtækisins eins og skilgreint er ístaðhæfi um vottun.

    5. Ábyrgð og framkvæmd

    Stjórn ber ábyrgð á að upplýsingaöryggisstefnunni sé framfylgt með því að setja markmið og reglur ogtryggja viðeigandi ráðstafanir til að framfylgja þeim.Stefnan felur í sér skuldbindingu um stöðugar umbætur í stjórnun upplýsingaöryggis. Stjórn getur faliðrekstrarnefnd eða upplýsingaöryggisnefnd eftirfylgni með tilteknum verkefnum sem varðaupplýsingaöryggi.Allir starfsmenn, verktakar og þjónustuaðilar eru skuldbundnir til að vernda gögn og upplýsingakerfi gegnóheimilum aðgangi, notkun, breytingum, uppljóstrun, eyðileggingu, glötun eða flutningi.Starfsmönnum og þjónustuaðilum, núverandi og fyrrverandi, er óheimilt að veita upplýsingar um innri málfyrirtækisins, viðskiptavina þess eða annarra starfsmanna.Aðilar sem brjóta gegn upplýsingaöryggisstefnu Kviku eiga yfir höfði sér áminningu í starfi, uppsögn eðaað beitt verði viðeigandi lagalegum ráðstöfunum allt eftir eðli og umfangi brots.

    6. Endurskoðun

    Endurskoða skal upplýsingaöryggisstefnuna á minnst tveggja ára fresti eða ef breytingar verða á skipulagieða starfsemi fyrirtækisins. Stefnuna skal leggja fyrir og staðfesta í stjórn Kviku og undirrita af forstjóra.

    Staðfest af stjórn Kviku 28. október 2021
    Áætluð endurskoðun október 2023