Algengar spurningar

    Algengar spurningar um allt frá því hvort það sé spurningar um einstaklinga, fyrirtæki eða lán.

    Einstaklingar

    Netgíró virkar í rauninni eins og kreditkort. Þú notar appið til að versla og færslurnar safnast saman á einn reikning sem er til greiðslu um mánaðamót.

    Þegar komið er að því að greiða opnar þú Netgíró appið og setur strikamerki upp á skjáinn sem starfsmaður verslunarinnar skannar. Einfalt, öruggt og þægilegt.

    Þú velur að greiða með Netgíró, slærð svo inn símanúmerið þitt og staðfestir svo kaupin í Netgíró appinu. Einfalt, öruggt og þægilegt.

    Þú greiðir 495 króna mánaðargjald fyrir hvern mánuð sem þú notar Netgíró. Kjósir þú að dreifa greiðslum fer kostnaðurinn eftir upphæð og fjölda gjalddaga. Kynntu þér endilega verðskránna okkar hér og prófaðu reiknivélina okkar.

    Þúsundir verslana bjóða upp á greiðslulausn Netgíró. Þú getur skoðað hvern og einn einasta þeirra hér.

    Úttektartímabilið er frá 26. til 25. næsta mánaðar. Reikningur birtist í netbankanum þínum. Þú sérð yfirlit yfir stöðu reikninga þegar þú innskráir þig inn á heimasíðu okkar. Reikningurinn birtist í netbanka þínum 25. hvers mánaðar og eindagi er fyrsta virka dag hvers mánaðar.

    Það tekur yfirleitt aðeins nokkrar mínútur fyrir okkur að sjá að greiðsla hefur borist. Ef greitt er eftir klukkan 21:00 merkist reikningurinn ekki greiddur fyrr en næsta dag.

    Þú getur alltaf nýtt þér heimildina þína svo lengi sem reikningurinn er ekki kominn í alvarleg vanskil.

    Greiðsludreifingin er einföld lausn sem gerir viðskiptavinum Netgíró kleift að dreifa greiðslum vegna stærri innkaupa í allt að 24 mánuði. Lægsta fjárhæð sem hægt er að dreifa er 9.900 kr. og mögulegt er að skipta henni á tvo gjalddaga. Allar nánari upplýsingar má finna hér.

    Ef þú óskar eftir að fá hærri heimild getur þú haft samband við þjónustuver okkar í síma 4 300 330 eða á netfang netgiro@netgiro.is.

    Hér getur þú séð allan kostnað vegna frum- og milliinnheimtu.

    Fyrirtæki

    Með því að bjóða upp á fjölbreyttari greiðslumöguleika eykur þú þjónustu og opnar dyrnar á fleiri viðskiptavini. Netgíró býður upp á einfalda og þægilega greiðsludreifingu sem margir viðskiptavinir kunna að meta.

    Forsvarsmenn fyrirtækja, hvort sem er í verslun eða netverslun hafa samband við okkur eða skrá sig hér á heimasíðu Netgíró. Í framhaldi mun viðskiptastjóri Netgíró hafa samband við þig.

    Netgíró vinnur með úrvalsliði tækni- og kerfisfræðinga sem stýra allri innleiðingu hvort sem um er að ræða uppsetningu í verslun eða í netverslun. Vesen er ekki til í þeirra orðabók.

    Einföld uppsetning á Netgíró í verslun frá undirritun samstarfssamnings tekur um það bil 10 mínútur með kennslu til starfsmanna. Uppsetning í netverslun tekur allt að 48 klst. Til að auðvelda enn frekar fyrir innleiðingu hefur Netgíró gert samning við flesta þjónustuaðila verslana og netverslana á Íslandi.

    Advania, SmartMedia, Apon, Hugsmiðjan, IO, MyCompany, Síðugerð, Dalpay, karfa.is, Netvistun, Körfukerfi.net, Netheimar, Davíð & Golíat, Allra átta, Notando, Premis, VK hugbúnaður, Stefna, Rue de Net, Outcome, Hype, Vettvangur, Overcast, Avista, Zolon, Xodus.is, WeDo, Reynd, Wise, DK, Hugbúnaður, MerkúrPoint, TM software.

    Forsvarsmaður fyrirtækis fær sérstakan stjórnenda aðgang að öruggum þjónustusíðum Netgíró sem eru aðgengilegar í gegnum netið. Þar er hægt að skoða nákvæmar upplýsingar um vörusölu og reikninga.

    Lán

    Netgíró Lán eru að lágmarki 50 þúsund krónur og að hámarki 1 milljón króna. Hámarksfjárhæð fer eftir lánshæfismati umsækjanda svo best er að skrá sig inn á umsóknarvefinn til að sjá hvað þú getur fengið hátt lán.

    Já, þú getur greitt lánið upp hvenær sem er. Engin gjöld eru tekin fyrir uppgreiðslur. Hafðu samband við okkur í tölvupósti á netgiro@netgiro.is og við klárum það með þér hratt og örugglega.

    Lántökugjald vegna peningalána er 3,98%.

    Fyrsti gjalddagi er fyrsta viðskiptadag næsta mánaðar eftir útborgun láns. Eftir það er greitt mánaðarlega af láninu.

    Við bjóðum upp á óverðtryggð lán frá þremur mánuðum til tveggja ára. Ekki er gerð krafa um veð eða ábyrgðarmenn.

    Við sendum kröfu í heimabankann þinn um hver mánaðamót.

    Lánið er lagt inn á þann reikning sem lántaki tiltekur í umsóknarferlinu.

    Nei, þeir sem eru skráðir á vanskilaskrá geta ekki fengið lán hjá okkur.